Hreinsun líkamans

04okt2011

Eftir hreinsanir eða einskonar afeitrun erum við næmari fyrir því sem við erum að láta ofan í okkur og einnig því sem við notum af snyrtivörum og þess háttar. Þess vegna er hreinsun góð til að átta sig á hvað við erum að gera vitlaust. Hreinsun ýtir líka undir aukna brennslu því er við tökum til hjá okkur fer líkaminn að hafa meiri tíma til að sinna því sem áður hefur ekki fengið eins mikla athygli. Ef við erum að afeitra fullt af efnum alla daga og nætur þá er það nokkuð ljóst að annað sem er minna mikilvægt er látið bíða. Þessi verkefni safnast á ákveðinn hátt upp og úr verður verra ástand líkamans. Upptaka og nýting á fæðu verður lélegri, efnaskiptin ekki sem skyldi og þar með fitubrennsla ekki næg. Hormónin okkar fara úr jafnvægi, blóðsykur verður ekki réttur, skapið stirt og við sofum ekki vel. Ef við vöknum illa úthvíld eru það skír merki um að það séu uppsöfnuð eiturefni í líkama og ójafnvægi á næringarefnum. Við eigum svo sannalega að vakna úthvíld í góðu skapi alla morgna!

Hvað er hreinsun eða afeitrun? Hreinsun felst í því að taka úr fæðinu þær fæðutegundir sem valda álagi á líkamann. Og hafa ber í huga að saklausar fæðutegundir og að öllu jöfnu hollar, geta verið að valda miklu álagi undir vissum kringumstæðum. Gott dæmi um það eru korn sem innihalda glútein (hveiti, rúgur, hafrar, bygg). Þá er ráðlegt að neyta þeirra ekki um tíma.. Þess vegna er gott að hafa fæðið einfalt og mestmegnis úr lifandi hrámeti. Ávextir og grænmeti eru vel til þess fallin að hreinsa líkamann. Jurtir og jurtate hjálpa líka til. Mikil vatnsdrykkja er nauðsynleg, helst um 2-3 lítra á dag. Við þurfum að skola miklu út, ef við drekkum ekki nóg getum við fundið fyrir ónotum, höfuðverk, sleni og þess háttar.

Það sem á alls ekki að vera í fæðinu er við hreinsum líkamann: Mjólkurafurðir, rautt kjöt, unnar matvörur, steiktur matur, hituð olía í einhverju formi, kaffi, gosdrykkir, sætindi, gervisæta og lyfjanotkun sem er ekki nauðsynleg. Gott er að nota það viðmið að fæðið á að vera algjörlega náttúrulegt, ef búið er að vinna fæðuna á einhvern hátt er hún ekki æskileg til hreinsunar. Vinnsla á fæði rýrir næringarlegt innihald vörunnar og oft á tíðum eru aukaefnum bætt í.