Ráðgjöf

Hægt er að panta tíma í einstaklingsráðgjöf sem innifelur:
Fæðuráðgjöf, fæðuóþolsmælingar, næringarefnamælingar og ráðgjöf varðandi bætiefni og jurtir.

Ráðgjöf

Óþols- og næringarefnamæling er framkvæmd með Scio (Scientific Consciousness Interface Operation system) hugbúnaði sem er sá fullkomnasti á markaðnum í dag á þessu sviði. Þessi hugbúnaður mælir með ákveðinni tíðni ójafnvægi í líkamanum. Mælingin er einföld í framkvæmd. Meðal annars er hægt að mæla og vinna með:

  • Fæðuóþol
  • Önnur óþol og ofnæmi
  • Ójafnvægi í næringarbúskap líkamans (vitamín, steinefni, fitusýrur, aminósýrur)
  • Ójafnvægi í meltingu og nýtingu fæðunnar (magasýrur, ensím, snýkjudýr)
  • Ójafnvægi í hormónakerfi (tíðir, tíðahvörf, þungun og fl.)
  • Ójafnvægi í taugaboðefnum (depurð, skapsveiflur, svefn, fíknir og fl.)
  • Ójafnvægi í efnaskiptum (t.d. hæg brennsla)
  • Streitu og áhrif hennar á viðkomandi
  • Margt fleira!

Tíminn í SCIO mælingu tekur u.þ.b. eina klukkustund. Það felur í sér viðtal, mælingu og ráðgjöf í framhaldi af því. Endurkomutími er á bilinu 45-50 mín. Stundum er gefinn endurkomutími til að gera aðra mælingu til samanburðar en það er sameginleg ákvörðun ráðgjafa og skjólstæðings.

Hafa ber í huga að yfirleitt eru ráðlögð bætiefni og annað sem þarf að kaupa í kjölfar tímans. Smáskammtalyf eru innifalin í verði ef þau eru notuð.

Ráðgjafi

Birna G. Ásbjörnsdóttir
Menntun: Smáskammtalækningar, mannspekilækningar, næringarþerapía, einstaklingsráðgjöf, svæðanudd, jógakennari og fleira.

Staður

Reykjavík: Bolholt 4, 4 hæð. http://www.rosin.is
Heilsuhúsið Lágmúla. http://www.heilsuhusid.is

Sólheimar í Grímsnesi:
Sólheimahús, 2 hæð. http://www.solheimar.is

Hafa samband

Netfang: jorth@jorth.is
Sími: 898 2804

Nánar um Birnu

birna 4

Birna G. Ásbjörnsdóttir er menntaður hómópati eða smáskammtalæknir frá The College of Practical Homeopathy, London. Hún hefur einnig menntað sig í næringarþerapíu (Nutritional therapy) og einstaklingsráðgjöf (Counseling). Birna tók einnig þriggja ára sérnám í Mannspekilækningum í Bretlandi. Birna útskrifaðist 2003 í Bretlandi og hefur unnið sem ráðgjafi síðan. Birna starfaði á stofu í London í þrjú ár en hefur starfað hér heima eftir það.