Um Jörth

Jörth er fyrirtæki sem framleiðir og selur Smáskammta ásamt því að bjóða upp á fæðuráðgjöf, óþols- og næringarefnamælingar.

Fyrirtækið er umhverfisvænt og vinnur með náttúruleg efni hvort sem þau flokkast sem innihald eða umbúðir.

Fyrirtækið Jörth er staðsett á Sólheimum í Grímsnesi en er með vörur í smásölu í verslunum víða um land. Ráðgjöf er hægt að fá bæði á Sólehimum og í Reykjavík.

Hvað eru Smáskammtar?

Eru unnir úr jurtakjörnum plantna. Í þá eru líka notuð sölt eða steinefni. Jurtirnar sem eru notaðar eru allar villtar eða lífrænt ræktaðar og flestar tíndar hérlendis. Jurtirnar eru tíndar eftir stöðu himintungla til þess að hámarka virkni hverrar plöntu. Er þar byggt á aðferðum lífefldrar ræktunar (biodynamic).

Smáskammtar eru búnir til og blandaðir eftir ævagömlum aðferðum. Efnin eru útþynnt og blönduð eftir ákveðnum reglum til að auka virkni þeirra.

Þegar búið er að vinna virku efnin úr jurtunum, þynna þau út til að auka virkni þeirra, er þeim komið fyrir í litlum laktósatöflum og pakkað í glösin. Allt þetta er handgert, hvort sem það er að tína plöntuna, vinna efnin eða pakka í glösin. Þannig varðveitast eiginleikar efnanna betur og allt ferlið fer fram af nákvæmni og alúð.

Hvernig virka Smáskammtar?

Þeir virka á okkur á marga vegu. Þeirra helsta hlutverk er að koma okkur í jafnvægi. Þeir hvetja líkamann til að laga sig sjálfan og stuðla þannig að heilbrigði.

Smáskammtarnir eru unnir úr jurtakjörnum og þynntir út til að auka virkni efnanna. Efnin vinna meðal annars með tilfinningar okkar. Það er mikilvægt að hlúa að tilfinningum okkar til að viðhalda heilbrigðum líkama.

Ef við vinnum ekki úr tilfinningum okkar geta farið að koma fram líkamleg einkenni síðar meir. Eitt gott dæmi þess er langvarandi streita. Hún getur leitt til ýmissa kvilla, s.s. hjarta- og æðasjúkdóma, svefnleysi, kvíði o.fl.

Þegar Smáskammtar eru teknir inn er gott að nota tækifæriið og huga að fleiru. Gott er að skoða mataræðið, forðast óhollustu, hreyfa sig og iðka útivist. Mikilvægt er að drekka vel af vatni og fá nægan svefn. Þannig fæst enn meira út úr inntöku efnanna, því allt þetta vinnur saman.

Ráðgjöf

Hægt er að fá ráðleggingar bæði fyrir einstaklinga eða hópa hvað varðar mataræði og heilbrigðan lífsstíl. Hægt er að bóka tíma í fæðuráðgjöf sem innifelur fæðuóþolsmælingar og einnig næringarefnamælingar.
Jörth er með ráðgjöf á tveimur stöðum í Reykjavík og einnig á Sólheimum í Grímsnesi.