Jörth er fyrirtæki sem framleiðir og selur náttúruvörur ásamt því að veita ráðgjöf hvað varðar hollt mataræði og heilbrigðan lífsstíl.
Fyrirtækið er umhverfisvænt og vinnur með náttúruleg efni hvort sem þau flokkast sem innihald eða umbúðir.
Vörurnar
Smáskammtar: Allar jurtir eru villtar eða lífrænt ræktaðar og flestar eru þær tíndar hér á landi. Ef um sérstakar jurtir eða önnur náttúruefni er að ræða eru þau innflutt frá birgjum sem eru á svipaðri línu.
Íslensku jurtirnar eru tíndar á ákveðnum tímum í tengslum við himintunglin en kallast sú tínsluaðferð “lífefld eða biodynamisk”
(http://en.wikipedia.org/wiki/Biodynamics ).
Þannig er kraftur jurtanna mestur og lækningamátturinn talinn meiri.
Önnur efni sem notast er við eins og steinefni eða næringarefni eru af bestu mögulegu gæðum.
Samsetning Smáskammta frá Jörth er einstök og ekkert í líkingu við þær til á markaði í dag. Kenningar á bak við Smáskammtana koma úr nokkrum áttum en má nefna Smáskammtafræðin (Homeopathy), Mannspeki (Anthroposophy) og Næringarþerapíu (Nutritional Therapy).
Ráðgjöf
Hægt er að fá ráðleggingar bæði fyrir einstaklinga eða hópa hvað varðar mataræði og heilbrigðan lífsstíl.
Hægt er að panta tíma í óþols- og næringarefnamælingu og svo eru auglýst námskeið reglulega á síðunni.




