Heim arrow Fróðleikur arrow Ráðgjöf
Fróðleikur
Ráðgjöf
Hafa samband
Hvað eru smáskammtar?
Um Jörth

Ráðgjöf
Hægt er að panta tíma í einstaklingsráðgjöf, óþols- og næringarefna mælingu.

Ráðgjafi
Birna Ásbjörnsdóttir er með næringarráðgjöf og óþols- og næringarefnamælingar.  
Menntun:  Smáskammtalækningar, mannspekilækningar, næringarþerapía, einstaklingsráðgjöf, svæðanudd, jógakennari og fleira.
Staður
Fyrir Fólk – Akralind 8 - www.fyrirfolk.is
Maður Lifandi – Borgartún 24 - www.madurlifandi.is/radgjof/birnaasbjornsdottir
Sólheimar – 801 Selfoss - www.solheimar.is

Hafa samband
Netfang:  jorth@jorth.is
Sími:  898 2804

Námskeið:  Eru auglýst á heimasíðunni þegar þau eru í boði.

Birna býður upp á eftirfrarandi ráðgjöf:
Næringarþerapíu ásamt óþols- og næringarefnamælingu sem er framkvæmd með Scio (Scientific Consciousness Interface Operation system) hugbúnaði sem er sá fullkomnasti á markaðnum í dag á þessu sviði. (http://www.quantumenergywellness.com )  Þessi hugbúnaður mælir með ákveðinni tíðni ójafnvægi í líkamanum.  Mælingin er einföld í framkvæmd.  Meðal annars er hægt að mæla og vinna með:

  • Fæðuóþol
  • Önnur óþol og ofnæmi
  • Ójafnvægi í næringarbúskap líkamans (vitamín, steinefni, fitusýrur, aminósýrur)
  • Ójafnvægi í meltingu og nýtingu fæðunnar (magasýrur, ensím, snýkjudýr)
  • Ójafnvægi í hormónakerfi (tíðir, tíðahvörf, þungun og fl.)
  • Ójafnvægi í taugaboðefnum (depurð, skapsveiflur, svefn, fíknir og fl.)
  • Ójafnvægi í efnaskiptum
  • Streitu og áhrif hennar á viðkomandi 
  • Og margt fleira!

Tíminn í SCIO mælingu tekur um eina og hálfa klukkustund, fyrsti tími.  Það felur í sér viðtal, mælingu og ráðgjöf í framhaldi af því. Endurkomutími er á bilinu 45-60 mín.  Vanalega er gefinn endurkomutími til að gera aðra mælingu til samanburðar.
Hafa ber í huga að yfirleitt eru ráðlögð bætiefni og annað sem þarf að kaupa í kjölfar tímans.  Smáskammtalyf eru innifalin í verði ef þau eru sköffuð í tímanum.

Nánar um Birnu:
Birna Ásbjörnsdóttir er menntaður hómópati eða smáskammtalæknir frá The College of Practical Homeopathy, London. Hún hefur einnig menntað sig í næringarþerapíu (Nutritional therapy) og einstaklingsráðgjöf (Counseling)
Birna útskrifaðist 2003 í Bretlandi og hefur unnið með hómópatíu, næringarþerapíu og ráðgjöf síðan.  Birna starfaði á stofu í London í tvö ár en hefur starfað hér heima eftir það.

Menntun:
Hómópatía:  The College of Practical Homeopathy, London
Næringarþerapía:  The College of  Natural Nutrition, London
Einstaklingsráðgjöf: The Biography and Social Development Trust, Englandi.
Mannspekilækningar:  British Postgratuate Training in Anthroposophic Medicine
Um Jörth Vörur Ráðgjöf Hafa samband

| JÖRTH EHF | Sólheimar | 801 Selfoss | S: +354 898 2804 | jorth@jorth.is |  Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun