Skilmálar

JÖRTH ehf kt. 560408 0800 framleiðir og selur bætiefni undir eigin nafni & vörumerki.

Vörur JÖRTH eru aðeins seldar á heimasíðu fyrirtækisins, jorth.is

Afhendingartími vöru er að jafnaði 1 til 3 virkir dagar, frá því að gengið var frá pöntun. Öllum pöntunum er dreift af Dropp. Afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp gilda um afhendingu vöru.

Ekki er greitt sérstaklega fyrir sendingu vöru sem er í áskrift. Verð áskriftarvöru er heildarverð. Sendingarverð leggst við verð á stakri vöru komið til kaupanda.

Verð eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti (vsk). JÖRTH áskilur sér rétt til að hætta við pantanir t.d. vegna rangra verðupplýsinga sem og að breyta verðum án fyrirvara.

Skilafrestur
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má hætta við kaup innan 14 daga. Skila skal vörunni, ónotaðri, með órofnu innsigli og í óskemmdum upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga/gallaða vöru. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga/gallaða vöru. Flutnings og póstburðargjöld fást ekki endurgreidd. Ætlir þú að skila vöru ertu vinsamlegast beðin um að senda hana ásamt kvittun til;

JÖRTH ehf
Eyrargata 35
820 Eyrarbakka

Galli á vöru
Komi upp óvæntur galli eða skemmd í vöru við komu til þín mun JÖRTH ráða bót á gallanum og láta kaupanda hafa nýja vöru án endurgjalds og aukakostnaðar eða endurgreiða vöru ef þess er krafist. Kaupandi er beðinn um að hafa samband við JÖRTH og að taka mynd af lotunúmeri vöru og skemmd/galla ef hægt er og senda á jorth@jorth.is

Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða með greiðslukorti Visa Electron, Maestro, Mastercard og Apple Pay á jorth.is

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.

Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.